Terms of service
Upplýsingar um Seljanda
Vefverslun thestore.is
Organique Cosmetics Iceland ehf. kt. 520913-0170, Þingholtsstræti 30, 101 Reykjavík.
netfang: info@thestore.is
Organique Cosmetics Iceland ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða uppá vörutegurnir fyrirvaralaust. Eins áskilur Organique Cosmetics Iceland ehf. sér rétt til að breyta reglum og skilmálum fyrirvaralaust. Öll verð á síðunni eru með fyrirvara um villur. Með því að nota vefsíðu og vefverslun thestore.is viðurkennir og samþykkir neytandi að viðkomandi hafi kynnt sér, skilið og samþykkt skilmála þessa, eins og þeir eru á hverjum tíma.
Afgreiðsla og afhending pantana
Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Sendingarkostnaður fellur niður ef verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira.
Pantanir eru sendar með póstinum eða Dropp og hægt er að velja um að fá þær sendar á næsta pósthús, heim að dyrum, pakkabox eða póstbox. Sendigar innanlands geta tekið allt að 3 daga.
Thestore.is tekur enga ábyrgð á vörum eftir að þær hafa verið sendar í pósti eða með Dropp. Ef vara er send tilbaka vegna rangra merkinga á póstlúgum og póstkössum lendir sá kostnaður á kaupanda.
Skilafrestur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin í vefverslun thestore.is. Framvísa þarf sölureikningi sem sýnir hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera í fullkomnu lagi og umbúðir óskemmdar og óopnaðar. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið.
Hafa skal samband með því að senda póst á info@thestore.is.
Ekki er hægt að skila baðsöltum og húðvörum.
Ekki er hægt að skila eða skipta útsöluvöru.
Við skil á vöru er miðað við kaupverð á sölureikningi. Ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt er endurgreitt að fullu þegar varan er komin í hendur seljanda. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd af thestore.is nema um gallaða vöru sé að ræða og ber kaupandi ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Thestore.is
Gölluð vara
Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn eða endurgreiðsla sé þess óskað. Vinsamlega sendið tölvupóst á thestore@thestore.is ef um gallaða vöru er að ræða.