Skip to product information
1 of 1

The Store

Reykelsi High Light - Bergamusk

Reykelsi High Light - Bergamusk

Regular price 2,490 ISK
Regular price Sale price 2,490 ISK
Útsala Uppselt
Verð inniheldur vsk Shipping calculated at checkout.

Ólíkt ódýrum reykelsum sem mynda mikinn reyk og sót, gefa High Light reykelsin frá sér léttan og fínlegan ilm, líkt og ilmvatn, sem helst í loftinu lengi. Hreinn bruni og lítill og hreinn reykur. Reykelsin brenna án þess að það skilji eftir sig þung og þrálát lykt. Hvert reykelsi brennur í um 45 mínútur og það eru 20 stk í pakkanum.

Bergamusk ilmurinn bíður uppá einstaka blöndu af ferskum bergamott-sítrus og djúpum moskus. Hér mætast léttleiki sítrusávaxta og hlýir, kryddaðir tónar moskussins – ilmur sem er bæði hressandi og umvefjandi. Þessi samsetning róar skynfærin en vekur jafnframt forvitni; hún kallar fram mynd af sólríkum síðdegi, þar sem ilmur af sítrusberki og hlýju lofti svífur um.

Ilmsamsetning

Toppnótur: sítrus, ferskja, græn lauf
Miðnótur: jasmín, gardenía, kamelía, rós
Grunnnótur: moskus, rav

Enginn bambuskjarni. Hér er um hreinar ilmsamsetningar að ræða – ekkert truflar ilminn, svo það er engin undirliggjandi lykt af brennandi viði. Náttúruleg innihaldsefni. Gerð úr viðardufti, jurtum, kvoðu og ilmkjarnaolíum sem eru sérstaklega valdar til notkunar í reykelsi og til að brenna við háan hita. Laus við óþarfa efni.

Langvarandi ilmur. Ilmurinn helst lengi í loftinu, sem gerir reykelsin okkar að frábærum valkosti við ilmkert og ilmurinn helst í rýminu í margar klukkustundir eftir notkun.

Notkun: Kveikið í reykelsinu þegar lítill logi myndast skal slökkva í honum með því að blása varlega á hann. Reykelsið fer þá að glóa og gefa frá sér léttan reyk og ilm.

Gætið ávallt öryggis: setjið reykelsið á stöðugt undirlag sem þolir hita og skiljið aldrei eftir logandi reykelsi án eftirlits. Hægt er að slökkva í reykelsinu hvenær sem er með því að þrýsta því að keramik standi eða gleri. Einnig er hægt að brjóta stangirnar í smærri bita og kveikja í þeim eftir þörfum.

Fólk með öndunarerfiðleika, ofnæmi eða næmi fyrir ilmefnum ætti að sýna sérstaka varúð.

View full details