The Store
Reykelsi High Light - Magno skin
Reykelsi High Light - Magno skin
Couldn't load pickup availability
Ólíkt ódýrum reykelsum sem mynda mikinn reyk og sót, gefa High Light reykelsin frá sér léttan og fínlegan ilm, líkt og ilmvatn, sem helst í loftinu lengi. Hreinn bruni og lítill og hreinn reykur. Reykelsin brenna án þess að það skilji eftir sig þung og þrálát lykt. Hvert reykelsi brennur í um 45 mínútur og það eru 20 stk í pakkanum.
Mango Skin – safaríkur mangó ilmur
Mango Skin, gleður skilningarvitin með safaríkum ávaxta ilm. Þegar kveikt er á þeim er eins og þú stígir inn í suðrænan ávaxta skóg – þar sem finna má ilm af mangóhýði, sætum safa og þéttu, safaríku holdi nýskorins mangós. Þetta ilmar sannarlega eins og alvöru mangó! Þetta er algjör veisla fyrir skilningarvitin: ferðalag í ávaxtagarð í Asíu, ásamt dásamlegri slökun.
Toppnótur: sítrus, ananas
Hjartanótur: mangó, hindber
Grunnnótur: kókos, vanilla
Enginn bambuskjarni. Hér er um hreinar ilmsamsetningar að ræða – ekkert truflar ilminn, svo það er engin undirliggjandi lykt af brennandi viði. Náttúruleg innihaldsefni. Gerð úr viðardufti, jurtum, kvoðu og ilmkjarnaolíum sem eru sérstaklega valdar til notkunar í reykelsi og til að brenna við háan hita. Laus við óþarfa efni.
Langvarandi ilmur. Ilmurinn helst lengi í loftinu, sem gerir reykelsin okkar að frábærum valkosti við ilmkert og ilmurinn helst í rýminu í margar klukkustundir eftir notkun.
Notkun: Kveikið í reykelsinu þegar lítill logi myndast skal slökkva í honum með því að blása varlega á hann. Reykelsið fer þá að glóa og gefa frá sér léttan reyk og ilm.
Gætið ávallt öryggis: setjið reykelsið á stöðugt undirlag sem þolir hita og skiljið aldrei eftir logandi reykelsi án eftirlits. Hægt er að slökkva í reykelsinu hvenær sem er með því að þrýsta því að keramik standi eða gleri. Einnig er hægt að brjóta stangirnar í smærri bita og kveikja í þeim eftir þörfum.
Fólk með öndunarerfiðleika, ofnæmi eða næmi fyrir ilmefnum ætti að sýna sérstaka varúð.
Share
