The Store
Reykelsi High Lite - Midnight sky
Reykelsi High Lite - Midnight sky
Couldn't load pickup availability
Ólíkt ódýrum reykelsum sem mynda mikinn reyk og sót, gefa High Light reykelsin frá sér léttan og fínlegan ilm, líkt og ilmvatn, sem helst í loftinu lengi. Hreinn bruni og lítill og hreinn reykur. Reykelsin brenna án þess að það skilji eftir sig þung og þrálát lykt. Hvert reykelsi brennur í um 45 mínútur og það eru 20 stk í pakkanum.
Midnight sky - Ilmurinn
Midnight Sky bjóða upp á rómantíska blöndu sem kallar fram andrúmsloft kvöldstundarinnar; hún vefur rýmið inn í hlýja vanillu og dýpt ilmsins af sandalwood. Ilmurinn minnir á fágaðan ilmvatnskeim – á borð við þann sem maður gæti borið við glæsilegan kvöldklæðnað. Þessir pinnar eru fullkomnir til að slaka á eftir langan dag.
Toppnótur: sítrus, lavender, patshouli
Hjartanótur: vanilla, moskus, rav
Grunnnótur: gvajawood, sandalwood
Enginn bambuskjarni. Hér er um hreinar ilmsamsetningar að ræða – ekkert truflar ilminn, svo það er engin undirliggjandi lykt af brennandi viði. Náttúruleg innihaldsefni. Gerð úr viðardufti, jurtum, kvoðu og ilmkjarnaolíum sem eru sérstaklega valdar til notkunar í reykelsi og til að brenna við háan hita. Laus við óþarfa efni.
Langvarandi ilmur. Ilmurinn helst lengi í loftinu, sem gerir reykelsin okkar að frábærum valkosti við ilmkert og ilmurinn helst í rýminu í margar klukkustundir eftir notkun.
Notkun: Kveikið í reykelsinu, þegar lítill logi myndast skal slökkva í honum með því að blása varlega á hann. Reykelsið fer þá að glóa og gefa frá sér léttan reyk og ilm.
Gætið ávallt öryggis: setjið reykelsið á stöðugt undirlag sem þolir hita og skiljið aldrei eftir logandi reykelsi án eftirlits. Hægt er að slökkva í reykelsinu hvenær sem er með því að þrýsta því að keramik standi eða gleri. Einnig er hægt að brjóta stangirnar í smærri bita og kveikja í þeim eftir þörfum.
Fólk með öndunarerfiðleika, ofnæmi eða næmi fyrir ilmefnum ætti að sýna sérstaka varúð.
Share
